Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynn: Atvinnuhúsnæði sem eru 60m2 að stærð við Álhellu 5, 221 Hafnarfirði.
Iðnaðarbilin eru stálgrind og límtré í burði. Timbureiningar eru í hliðum hússins og þakið er með panel samloku einingum, með steinull sem einangrunar millilag. Einingarnar eru úr lituðu aluzink.
Í dag er búið að steypa grunninn, gólfplötu og verið er að reisa húsið.
Um er að ræða tvær gerðir:
4 bil sem eru 72m2 að stærð. Breidd er 6m x 11.05m að lengd, ásamt millilofti fyrir sameiginlegum gangi. Verð 23,7milj. ( Öll bilin seld )
24 bil sem eru 60m2 að stærð. Breidd er 5m x 11,05m að lengd, ásamt millilofti yfir sameiginlegum gangi. Verð 19,8milj. ( Aðeins 1 bil eftir )
Iðanaðarbilin eru með iðnaðarhurð, sem eru 2,8m á breidd og 3m á hæð. Gönguhurð er inn í hvert bil. Gangur, er í miðju húsi, sem brunaútgangur. Hæð á framhlið er 4,2m og mæni 5,7m.
Að innan er húsnæðið með steyptri gólfplötu. Heitt og kalt vatn komið í húsnæðið og ofnar tengdir. Rafmagnstafla skilast með 3ja fasa tengingu. Niðurfall í gólfi er í öllum bilum.Heitt og kalt vatn liggur og niðurfall er í öllum iðnaðarbilunum.
Afhending er í enda des. 2023.
Lóð verður malbikuð og svæðið er girt af.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56, [email protected], og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fastko.is