Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Glæsilega 136,3m2 íbúð á efri hæð, þar af er bílskúr 41,2m2, á frábærum og vinsælum stað við Melabraut, 170 Seltjarnarnes.Nánari lýsing: Forstofa er í opnu rými með stofu og eldhúsi.
Eldhús er með dökkri innréttingu frá HTH og góðum tækjum frá Bræðurnir Ormson.
Stofa er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt út á nýjar suð-vestur svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp og þaðan er útgengt út á
suð-vestur svalir.
Barnaherbergið er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er með sturtu, innbyggðu salerni og fallegri innréttingu frá HTH og góðum skáp.
Þvottahús er á hæðinni með glugga og vinil parket á gólfi.
Bílskúr er 41,2m2. Bílskúr hefur allur verið endurnýjaður með nýju þaki, einangrun og klæddur að utan. Ný bílskúrshurð og hitalögn í steyptri innkeyrslu fyrir framan bílskúr.·
Húsið ásamt bílskúr er allt er ný uppgert að öllu leiti.
· Nýjar frárennslis-, neysluvatns-, rafmagns- og hitalagnir ásamt ofnum. Nýtt þak, einangrun og klæðning utan á húsinu.
· Húsið er klætt með litaðri Bond klæðningu frá Málmtækni
· Nýjar svalir hafa verið settar út frá stofu.
· Nýjar útihurðar, gluggar og gler eru frá BYKO.
· Í eldhúsi eru innréttingar nýjar, frá HTH, ásamt eldavél með viftu, ofni, innbyggðum ískáp og innbyggðri uppþvottavél, frá Bræðrunum Ormson. Fataskápar eru frá HTH.
· Baðherbergi er með nýjum flísum á gófi og veggjum að hluta, hertu gleri við sturtu, innbyggðu salerni, nýrri innréttingu, frá HTH, ásamt tækjum, frá Bræðrunum Ormson ehf.
· Innihurðar og vínil parket er á gólfum íbúðarinnar er frá Parka.Sorptunnuskýli hefur verið komið fyrir fyrir framan húsið.
Lóðin er 820m2
eignarlóð.Staðsetning er frábær þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslunarmiðstöð, heilsugæslu, golfvöll, sundlaug og frábært útivistarsvæði.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56,
[email protected], og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fastko.is
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.