Álhella 5, 221 Hafnarfjörður
24.900.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
69 m2
24.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.280.000

Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: frábært atvinnuhúsnæði við Álhellu 5, 221 Hafnarfjörður.

Um er að ræða atvinnu húsnæði á einni hæð sem er að grunnfleti 55,9m2 og u.þ.b. 13,1m2 milliloft.


Iðnaðarhurðin er 2,8m á breidd og 3m á hæð. Gönguhurð er inn í hvert bil. Hurð er í enda bilsins inn í brunaútgang sem er eftir endilöngu húsinu.
Iðnaðarhurðin veður með braut sem fer eftir þakhalla (hærri brautir)

Brúttó gólfflöturinn er 5m á breidd og 11,05m á lengd. Hæð á framhlið er 4,2m og í mæni er hæðin 5,7m.

Húsnæðinu verður skilað með niðurfalli, vask, heitu og köldu vatni. Lýsing í lofti, ofnar til upphitunar á hverju rými. Rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni ásamt einum 3ja fasa rafmagnstengli við töflu. Rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara, ljósrofi og rafmagnstengill nálagt hurð.

Húsið er límtrésgrind, veggir eru gerðir úr forgerðum samlokueiningum (harðpressuð steinull 100kg./m3 klædd með 0,6mm þykku alumzinki með innbrendum lit). Veggirnir eru 100mm þykkir.

Innveggir eru bæði gerðir úr timbri, einangraðir með steinull, klæddir með plötum og forgerðum samlokueiningum eins og lýst er hér að ofan.

Þakeiningar eru gerðar úr 120mm þykkum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3).

Gólf eru staðsteypt, með trefjasteypu og vélslýpuð með niðurfalli.

Raflagnir eru utanáliggjandi á veggjum og sýnilegar, 3ja fasa rafmagn í rafmagnstöflu í hverju rými.  Sér rafmagnsmælir er fyrir hvert bili, í inntaksrými hússins.

Vaskur og heitt/kalt vatn tengt. Ofn í hverju rými. Hiti er sameiginlegur og sér húsfélagið um innheimtu húsgjalda til að m.a. mæta þeim kostnaði.

Stútur er í gólfi fyrir WC

Bílastæði á lóð eru sameiginleg og bílaplan er malbikað.
Lóð er afgirt með hliði á norður og suður hlið.

Ath. hægt er að fá tvö samlyggjandi bil.

Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56, [email protected], og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fastko.is

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu  kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.700  af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk.  sbr. Kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.